Bloggfærslur mánaðarins, mars 2008

Glæsilegt !

Þessu er ég hrifin af, ekki gefa eftir með þetta og ná þeim öllum , pakka þeim saman og senda úr landi með næstu vél. Wink gefa skýr skilboð um að við líðum ekki svona háttarlag, er ekki komin samningur milli landa um að hægt sé að flytja dómsmál til þeirra heimalands.?
mbl.is Rannsókn á árás forgangsmál
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nei en við finnum fyrir því

spitaþað má alveg segja það að við hinn sem þurfum að borga brúsann finnum fyrir kreppu, yfir okkur dynja verðhækkanir og umfjöllun um hækkanir, allir sem geta munu í framhaldið hækka til að standa undir þessar væningar, þar er fjármálakreppan okkar, það kreppir að veskinu mínu. Og mér þykkir það frekar leitt.
mbl.is Fjármálakreppa ekki endilega fylgifiskur samdráttar á Íslandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Olíufélögin gripu gæsina glóðvolga

Forsvarsmenn Haga upplýsa í morgun um að það sé 20% hækkun matvælaverðs framundan. Grafalvarlegt ef innlendir aðilar eru að vinna gegn krónunni, eru þetta ekki það sem menn vilja gera nota tækifærið að hækka þar sem gengið hefur hækkað , samanber hækkun á Olíu fyrir helgi ekki lækka þeir núna þegar gengið hefur lækkað aftur 4% í dag, fyrir utan það sem olíuverð hefur lækkað á heimsmarkaði, það er alveg vitað mál að allir sem geta hækkað munu hækka og bera við sig gengið. Ég held að ASÍ verði að gera betur en þetta, og við líka. " Þetta er það sem er við köllum græðgi"
mbl.is Forsendur samninga að bresta?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Krónan styrkist um 2,6%

oppsOg Olían lækkar, sem sagt það eru allar forsendur fyrir að Olíufélögin lækki talsvert núna, eða koma þau með lame afsökun eins og að búið sé að fjárfesta í dýrari Olíu... Ekki eru þeir jafnfljótir að lækka og þeir voru að hækka.

 

Til allra Olíufélaganna segi ég SKAMM og sýnið nú dug og kraft, hverjir verða fyrstir til að lækka.! 

 


mbl.is Olíuverð lækkar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Á þessu verður að taka strax

pollandÞað má alls ekki gefa þessum mönnum sjens á að komast úr landi eða dómarar að vera mjúkir í þessu máli, það verður að taka á þessu strax annars er ég hræddur um að það eigi eftir að aukast til muna og við fáum yfir okkur en frekari vandræði.   "Burt frá Íslandi með þessa men... það hafa ekkert hér að gera."

Senda þá heim og gefa þeim sem hér eru og stunda svona lagað skýr skilaboð að við munum ekki líða svona lagað.


mbl.is Innheimtu verndartoll
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Rétt að byrja

mafia_diva2_09Ég tel að þetta sé rétt að byrja með glæpagengi og á eftir að aukast, dópsalar, peninga plokk og mafíu hættir eins og rukka fyrir að fá að vera hérna ó áreyttir, þessa men á að senda úr landi með það sama, þeir hafa sýnt það að þeir eru ekki þess verðugir að fá að vera hérna. Ekki eyða aur í að dæma eða fjalla um þeir mál, send þá burt með næstu vél til sinn heimalands.
mbl.is Pólsk glæpagengi herja á aðra Pólverja hér
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Laugardagur

Vá mér finnst ég vera búin að vera í fríi í mera en viku, kannski vegna þess að maður er jú búin að vera rosalega duglegur, hættur að sitja á rassinum og gera ekkert , komin tími til hreingerninga og tiltekt úti við, fórum með Gutta í góða göngu í gær, skruppum í húsdýragarðinn með Vigni og Lenu og börnum, Valgeir Níls og Huldu Hönnu, tókum til og höfðum það bara næs. Í dag tók ég limgerðið og klippti það niður og þreif gluggana að utan.

mjög ánægðu með daginn í dag. í kvöld koma síðan Helena og Nonni í  Raklette.


Góður dagur til myndatöku

Það má sko segja að þessi dagur sé með þeim betri til að mynda, fór með Gutta hundinn minn í smá göngurtúr í Lónakot og Straum. Veður var alveg frábært stillt og sól, setti nokkrar myndir í albúmið hjá mér hjá Flickr.com

 


Gleðilega páska

paskaeggJæja það þýðir ekkert allaf að vera skrifa neikvætt um þjóðfélagið og eða blogga um hamfarir, nú óska ég öllum bloggurum nær og fær gleðilega páska og étið nú fullt af páskaegg. Ég er í átaki þannig að það verður frekar lítið um það hjá mér.

Veður er gott og góður tími til að fara með hundinn minn út að ganga, eða hann mig, við ætluðum reyndar að fara í Viðey í gærkvöldi til að fylgjast með tendrun friðarsúluna, en þegar við komust að því að það ætti að kosta 2000 kr á man með ferjunni (venjulegt gjald er 800kr) var snarlega hætt við, jú þær skýringar fengust að við fengum líka heitt að drekka á leiðinni, líklega kaffi, ferðin er ekki nema 10 min. Mér finnst frekar erfitt að réttlætta þetta..

 


Þeir lækka ekki!

BensinbyssaÞað er eingin ástæða að lækka, gengið hefur hækkað það verður afsökun hjá þeim, og fyrir utan það þá verslum við af þeim þó svo að þeir lækki ekki,  og þeir vita það.  Það er  enginn samstaða til í  íslendingum  við tölum um vandamálinn yfir kaffibolla og bloggum en gerum ekkert,  það vantar menn eins og Guðmund jaka, hann dreif sitt fólk út og mótmælti. "Við bloggum". og meðan svo er þá gerist ekkert, hvorki núna eða seinna, Því miður.
mbl.is Olíuverð á niðurleið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband