Bloggfærslur mánaðarins, nóvember 2009

Þökkum núverandi Ríkistjórn fyrir að auka á vandann

Þetta er fyrsta skrefið við að auka á vanda okkar og það með því að setja skatt á sykur sem þar af leiðandi mun minnka sölu á gosi sem leiðir af sér uppsagnir..
mbl.is Uppsagnir hjá Ölgerðinni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skjaldborg sett á heimilið, kannist þið við þessi orð!!!!

c_users_helgi_desktop_xd_2009_johanna_og_steingrimur_837834Var það ekki núverandi ríkistjórn sem sagði þessi frægu orð, Steingrímur og Jóhanna vildu meina að þau ætluðu sko að vernda heimilin á þessu landi, ætli það geti verið að þau hafi meint að þau ætli að láta okkur sko borga brúsann , það er ekki hægt annað en að hugsa hvort þau eigi rétt á sér að vera kallaðir þingmenn og ráðherrar eftir að hafa logið svona að þjóð, undanfarið hafa þau ekkert gert annað en að hækka lánin mín, bætt á mig sköttum og þau eru ekki búin að leggja nóg vegna þess að það á eftir að hækka enn meir með hækkun virðisaukaskatt , með öllu þessum hækkunum hækkar vísítalan og við það hækka lánin mín, jú ekki gleyma að þau komu greiðslujöfnun handa fjölskyldum en ætli það hafi ekki verið útspil að þeirra hálfu til að geta hækkað skatta eins og þeir hafa gert, ekki gátu þau bara hækkað skatta það varð að koma með greiðslujöfnun handa okkur síðan taka það til baka í formi hækkun skatts, er þetta eðlilegt viljið þið halda áfram að borga og borga..

 

Ég segi að þetta er fyrirfram ákveðið af Jóhönnu og Steingrími að lækka útgjöld heimilanna og hækka síðan skatt þannig að við greiðum allan brúsann meðan þau hlæja að heimsku okkar


mbl.is Bensínið kostar 60.000 meira
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvað finnst ykkur um þessi umæli

I hope that this issue can now be resolved swiftly, enabling us to move forward and develop still further our strong bilateral relationship.  ég segi við Gordon Brown " take a hike" and get lost, we do not need you and if you think you can over power us you have a suprise coming, UK has tried to win the Icelandic people once before and we defeated you and we will again.

Með þessum orðum finnst mér að við hefðum átt að fara í hörku með þessa andskota..

 


mbl.is Brown álítur Icesave bindandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ekki rétt

Það eru margir Iðnaðarmenn farnir að undirbúa flutning út og hafa ekki flutt lögheimilið sitt enn sem komið er, margir eru að koma upp íbúð og festa sig í vinnu áður en þeir kalla til fjölskyldunnar, en ég mundi gera ráð fyrir að það verði sprenging í flótta frá Íslandi á næsta ári ef það er eitthvað að marka allar þessar skattahækkanir sem á að leggja á okkur 2.5 Kr á bensín. 10% viðbótarskatt á áfengi og tóbak virðisaukaskatt og margt fleira fyrir utan þess að laun eru að rýrna , jú þá taka þeir til þess ráða að leyfa fólki að taka meira út af séreignasparnaðinum sínum því þá fær ríkið enn meir . Þvílík andskotans vitleysa ég er alveg komin á þá niðurstöðu að Jóhanna og Steingrímur hafa sett hlífðarskildi utan um ríkið og ráðherra , en mjólka þjóðinni eins og hægt er.... en á meðan eru útrásarvíkingarnir allir farnir af landi brott með sínar milljarða og lífa góðu lífi... vá hvað er að þessu
mbl.is Fleiri flytjast til útlanda en nokkru sinni fyrr
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Því hafi þeir ekki Kyrrsett eignir annarra eins og útrásarvíkingana

Ég spyr án þess að vera að benda á Baldur, en afverju hefur sérstakur saksóknari ekki kyrrsett aðrar eignir eins og hjá þeim sem eiga sök á þessu hruni, Bankastjórar Kaupþings og Landsbanka, og Íslandsbanka er það kannski þannig að þeir hafa ákveðið að nota Baldur sem fordæmi, þetta voru nokkur hundruð milljónir sem hann seldi fyrir en það voru tugi hundruð milljarðar sem fyrirverandi bankastjórar bruðluðu með og ekki er búin að kyrrsetja þá né hefta á neinn hátt, getur það verið að þeir þori því ekki vegna alla peningana sem þessu menn eiga? mér er spurn.

 

 


mbl.is Lögmanni Baldurs algjörlega ofboðið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Verslum við kost , hættið að versla við útrásavíkingana

Með því að við stöndum á bakvið Kost og verslum við hann meira en aðra eflum við það og njótum góðs af því þó að seinna verði, þá verða þessir aðilar að lækka verð til hans og við fáum lægri verð til okkar, þannig að við landsmenn góðir ef við viljum sjá samkeppni virka þá verðum við að efla þá.
mbl.is Vill betra verð frá birgjum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skammist ykkar og ekkert annað

Meðan þjóðin blæðir þá krefjast þeir laun upp á 460 milljónir sem dæmi, hvað er að þessu segið mér það, það er verið að skera niður heilbrigðiskerfið og lækka laun marga og þeir voga sér að gera kröfu í bankann sem dró heila þjóð í fátækt á nánast einu kvöldi. Látið ykkur hverfa af landi þið útrásarvíkinga.

 


mbl.is Starfsmaður félagsmálaráðuneytis með ríflega 200 milljóna kröfu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skilnaðir eiga eftir að aukast, Er ekki í lagi með þig Stengrímur

Á hvaða fljúgandi teppi komst þú eiginlega, heldur þú virkilega að með því að leggja enn meiri skatt á hjón að þau setji hjá aðgerðalaus, skilnaðir eiga eftir að aukast til að komast hjá samsköttun, ég er stórlega farin að efast um getu þína sem fjármálaráðherra.
mbl.is Hjúskapur meira skattamál en áður
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Möguleiki er á að samsköttun hjóna = Skilnaður

Möguleiki er á að samsköttun hjóna er þetta ekki bara einn leið til að fólk fari skilnaði til að þurfa ekki að borga hærri skatta, eins og með leikskólana einhleypir hafa betri aðgang en gift.
mbl.is Nýir skattar inni í myndinni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Auðvitað lýgur hann ,,Ríkistjórninn okkar eru brúður AGS

 bullshit

Það er alveg vitað að AGS stýrir Íslands í fjarska, þeir segja hækka skatta þá hækka þeir, þeir segja að það eigi ekki að lækka vexti þá lækka þeir ekki, Jóhann og Steingrímur eru bara að þiggja laun fyrir að þykjast ráða einhverju en í raun eru það AGS, hvaða skýringar gefa þeir fyrir að hafa ekki endurskoðað efnahagsáætlun Íslands fyrr en nú. Bull segi ég og Jóhann og Steingrímur ættur að skammast sín fyrir og ekkert annað.

 

Þetta þjóðfélag er svo spillt að Ítalska mafían mundi roðna, sjáið til dæmis ráðningarnar sem hafa verið frá áramótum án þess að auglýsa , það væri gaman að sjá hver tengslin eru á milli þess sem réði og þess sem var ráðinn, það á að afskrifa miljarða ofan á miljarða fyrir þessa helvítis útrásavíkinga en við eigum að borga með hærri sköttum , það er búið að hækka eldsneyti  og það á að hækka það meira, það er búin að hækka áfengi og það á að hækka það ennþá meira, er fólkið ekki komið með nóg er ekki kominn tími til aðgerða.


mbl.is Lausn Icesave-deilunnar ekki skilyrði AGS
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband