Bloggfærslur mánaðarins, október 2009

Því ættu foreldrar þessara barna ekki að borga

Kröfðust þau ekki þess að börnin fengu líka að kaupa. látum þau þá borga....
mbl.is Hyggst ekki innheimta lánin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þessi ríkistjórn er ekki starfi sínu vaxin.

Það er greinilegt að þeir kunna ekki að reka þetta land nema beint á hausinn, hækkun skatta skilar engu nema minna í kassann , tökum bara áfengið það er búið að hækka um 20% og það er samdráttur um 20% í sölu þannig að það skilar 0kr í kassann, orkuskattar munu gera það sama... ætla þeir ekki að læra eða er það markmið þeirra að keyra okkur aftur í forn-öld með sköttum og aftur sköttum , fólk er að flýja landið og það á líka eftir að aukast hvar enda þetta ......
mbl.is Í bið vegna orkuskatts
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fylkist með verðum hjá þeim eftir breytingar

Þá kemur fram að Metro-staðirnir muni áfram bjóða svipaðar vörur og áþekkan
matseðil á sambærilegu verði. Þar sem lækkun hljóti að koma fram í þessu hjá þeim er það ekki, núna þegar þeir þurfa ekki að kaupa erlent og þar með sparað gjaldeyri... eða munu þeir hækka ?
mbl.is McDonald's hættir - Metro tekur við
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þar hafið þið það...... AGS er okkar ríkistjórn

Við höfum alltaf vitað það að AGS ræður hér, Þessi leppar sem við erum með eins og Steingrím og Jóhönnu er ekkert annað en brúður í höndum þeirra, þeir ráða hvort, hvenær eða hversu mikið við lækkum vexti, og ég væri ekki hissa ef þeir segja Seðlabankanum að lækka ekki vexti og þeir verða við því.
mbl.is Vill varkárni í vaxtalækkun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Einliða samningur

Vissum við það ekki að þetta er einhliða samningur við samþykkjum og þegjum bara annars loka þeir bara aftur og við fáum ekkert lán, (þetta er Mafía nútímans)
mbl.is Gera þarf róttæka breytingu á efnahagsáætlun AGS
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þið ættuð að skammast ykkar

ég segi það og tel rétt að þessi ríkistjórn ætti að skammast sín og taka pokann sinn og láta sig hverfa, að samþykkja skilmála Breta og Hollendinga er bara bleyðu háttur og ekkert annað, Steingrímur hefði átt að spara stóru orðinn þegar hann sem aðrir stóðu að mótmælum á austurvelli, það má segja með fullri vissu að það er ekkert að marka neitt af þessum alþingismönnum sem við kusum á þing, um leið og þeir eru komnir með launa og sæti á þing breytist allt viðhorf þessara manna og kvenna í það að hugsa um rassinn á sjálfum sér skít með þjóð... bæta byrðum á þjóð og standa ekki við gefin loforð...

 

Hlítur að vera sérskóli sem þetta fólk fer í ?????????


mbl.is Icesave-fyrirvörum breytt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ætti að taka af þeim Ríkisborgarréttinum

audmennÞessi menn hafa ekkert hingað að gera aftur það á að frysta eigur þeirra og í raun ætti að vera löngu búið að því , en þeir eru með suma þingmenn í sínum vösum og komast upp með það, núna þegar ástandið er mjög slæmt hér þá auðvitað flýja, haldið þið að þessir menn hafi áhuga á að byggja upp landið sem þeir settu á hausinn nei, þeir eru búnir að koma öllum sínum aurum út fyrir landið og búa við góð skilyrði úti, enda lítið þekktir þar.

Ég er sammálar Birgittu það á eftir að hitna heldur betur í kolunum í haust og vetur ef þessi ríkistjórn fer ekki að koma sér af rassgatinu og gera eitthvað við þessu ástandi annað en að tala um það, hvað varð um lækkun lána og færslu lána yfir í íbúðalánasjóð sem rætt var af félagsmálaráðherra, var þetta allt bara óskir af hans hálfu eða ? eru engar raunhæfar aðgerðir í gangi ?

En með þessa útrásavíkinga þá á að svipta þá ríkisborgararétti og gera þá útlæga... Þetta er mín skoðun á þessu


mbl.is Flestir lykilmennirnir farnir frá Íslandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Og á eftir að minnka enn meir

Veit ekki í hvaða skóla þessir herramenn fóru í en skattahækkanir hafa aldrei skilað sér á fullu, heldur hafa þær öfug áhrif , hækkun þýðir að í raun er lækkun í ríkiskassann en við hverju getum við búist þegar við erum með Amötora í ríkistjórn að stýra þessari þjóð.

Og á eftir að dragast enn meira saman

Red%2520Wine%2520glass%2520bottle,%2520seniors%27%2520health,%2520red%2520wine%2520in%2520diet Hélt þessi ríkistjórn að með því að hækka skatta á áfengi að þeir mundi fá meiri aura í kassann, í hvaða skóla gekk þetta fólk, það er sannað að með hækkun skatta minnkar innkoman, og ekki nóg með það núna eru margir farnir að brugga sitt eigið vín sem kostar margfalt minna en að fara í ríkið, og þeir eru með á prjónum að hækka skatta um 20% til 30% meira á næstu misserum haldið þið að það muni ýtta á sölu og auka innkomuna á ríkisgjöldum NEI það mun dragast enn meira saman. Þessi Ríkistjórn er gjörsamlega óstarfhæf og veit ekkert hvað það er að gera, þetta er eitt af mörgum þeim vitleysum sem Jóhanna og Co eru að gera.
mbl.is Sala á áfengi dróst saman í september
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Að sjálfsögðu er hagnaður...

Það er búið að mjólka þjóðfélagið eins og þeir geta með hækkun á eldsneyti, álagning hefur hækkar umtalsvert síðan hrunið, nýta tímabilið til að hækka svo um munnar og láta þjóðina borga sukkið.

Gaman verður að sjá hinn olíuféfélögin þegar þau koma með uppgjörið


mbl.is Eigið fé N1 um sjö milljarðar króna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband