Þeir komast upp með þetta
4.11.2008 | 08:02
Vegna þess að við erum með gelda stjórn hér þar sem það er enginn ákveðni í henni né dugur, þeim er sama um alla þessa peninga, þeir vissu um þessi mál það er alveg 100% og vonuðust að þetta kæmi ekki á yfirborðið, hvað er verið að bjóða okkur þeim sem verða að borga þessar skuldir jú frystingu lána ef við erum heppin það er að segja ef við lendum á góðum þjónustufulltrúa sem nennir að sinna vinnu sinni, en ég held að það eigi eftir að koma miklu meira í ljós og mikið af því verður ýtt undir teppið þannig a við sjáum það aldrei, vegna þess að ef allt kæmi á yfirborðið mundi í fyrsta sinn í sögu íslands verða múgaæsingur og fjöldamótmæli.
Þurfa ekki að greiða fyrir hluti í Kaupþingi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Þetta kallast á góðri Íslensku skattsvik, þjófnaður og bankarán. Skattsvik fyrir að borga 10% fjármagnstekjuskatt af arði hlutabréfa sem þeir áttu ekki, þjófnaður að stinga 90% af arðinum beint í vasann og bankarán að afskrifa skuldir sín á milli. Hvaða dóm ættu þessir menn að fá og hvenær ætli þeir verði dæmdir ?
Sævar Einarsson, 4.11.2008 kl. 10:45
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.