N1 og Skeljungur lækkið hressilega til okkar núna strax!

sjá það á Sky að Godon Brown fór fram á það við olíufyrirtækin að þeir lækkuðu í takt við heimsmarkaðaverð, kannski hann á við sama vandamál og við að þessir djöflar hér vilja ekki lækka þó svo að olíuverð sé 50% lægra en það var fyrir um 3 mán síðan og við erum ennþá með sama verð. Þetta er með ólíkindum að þjóðin sé ekki búin að gera neitt ,,,,,, það er ekkert til sem heitir samstað eða snúa bökum saman hér, fólk lætur taka sig hvað eftir annað í aftureddan án þess að gera nokkuð
mbl.is Fatið niður fyrir 70 dollara
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

EEE. Ég er bara feginn að verðið sé ekki búið að hækka hjá okkur. Það er eiginlega ekkert skráð gengi á krónunni. Hún er svona 2-3x verðminni úti í heimi en hún var fyrir mánuði síðan og eiginlega með óskráð gengi og enginn treystir henni eða vilja stunda við okkur viðskipti, tala nú ekki um það að menn fá ekki erlendar greiðslur til landsins og fá ekki gjaldeyri til að senda greiðslur út. þannig að ég er MJÖG ánægður að olíufélögin eru að klára olíuna sem þeir hafa og eru að selja hana á því verði sem þeir fengu hana og í raun bíða með hækkun og vona að krónan taki við sér.

G 16.10.2008 kl. 21:06

2 Smámynd: ViceRoy

Á hvaða forsendum ættu þeir að lækka? Dollarinn er í sama kaup og sölugengi á hverjum degi, (vita virðist vera fáir hvert raunverulegt gengi krónunnar er) sem þýðir að innkaupaverð líter á eldsneyti verður það sama, sem þýðir að á meðan að þetta blessaða efnahagsástand stendur yfir hjá okkur og dollarinn helst í sama verði (og guð forði okkur frá því að hann hækki) þá er lækkun ekki á boðstólum, nema við förum að þröngva olíufyrirtækjum að byrja að tapa gríðarlegum fjármunum (með miklum lækkunum). Og ef svo myndi verða, þá kannski ef illa fer, stendur samkeppnissnauður markaðurinn eftir hér á Íslandi.

Það eina sem hægt er að gera er að fara fram á við stjórnvöld að lækka sínar gríðarlegu álögur, sem væntanlega felur í sér, toll, vask, fasta króntölu, skatt á olíufélög, o.s.frv.

Ríkið mætti þar að auki, til að létta á pyngju landans, hækka vaxtabætur, lækka bifreiðargjöld, fasteignagjöld (sem er reyndar á vegum bæjarfélaga)... og lengi mætti örugglega telja.

ViceRoy, 16.10.2008 kl. 22:14

3 identicon

Nákvæmlega, samt ekki sammála að stjórnvöld eigi að leiga álög á bensín því þetta eru tekjur sem þau treysta á og þurfa og geta ekki staðið undir þessum lækkunum til lengri tíma litið. Það er ekki hægt að niðurgreiða bensín og hefur það sannað sig í mörgum fátækustur íkjum heims. Eftirspurnin verður bara að minnka, það er eina lausnin. Og hún minnkar ef verðið er hátt, það er að sannað sig núna. Verðið búið að vera hátt, eftirspurn minnkar, verðið lækkar. Það er ekki hagfræðilega hægt að verðið hækki, ríkið niðurgreiðir og verð lækkar, eftirspurn eykst, niðurgreiða meira, eftirspurn sú sama, verðið lækkar aldrei. Vítahringur þangað til ríkið springur og allt sem á eftir að fara til fjandas, fer til fjandans

G 16.10.2008 kl. 22:49

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband