Jæja, voru þetta íslenskir strákar eða!

Núna er ekki sagt að íslenskir karlmenn eða af erlendu bergi brotnir menn, en þar sem þeir voru á leið til Reykjanesbæjar frá Breiðholtinu þá ályktar maður svo að þarna voru Pólverjar á ferð með annan Pólverja. komið að skuldadögum.

 


mbl.is Þrír rændu manni í Breiðholti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

já, svona mótast vitund fólks á því sem er að gerast. Fyrst er hugmynd plantað í hausinn á fólki (það eru Pólverjar sem að fremja glæpi) og svo gengur þetta þar til að einn dag þá ályktar fólk að allir glæpir séu framdir af Pólverjum.

Ekki að segja að þetta hafi ekki verið Pólverji, Kínverji, Breti, eða eitthvað annað nationality sem að var á ferð, en svona verður "raunveruleikinn" til.

Linda 28.3.2008 kl. 08:09

2 identicon

Er ekki oftar ad thad se minnst serstaklega a ad polverjar hafi framid glaepi frekar en ekki?

Finnst ogedlegt hvad folk er duglegt ad tyna upp rasisma eftir ad polverjar koma til landsins

Baldur 28.3.2008 kl. 08:28

3 identicon

Ég trúi nú varla að þú viljir að tekið sé fram "Íslenskir karlmenn gerðu..."?  Ég veit að það er mikið af útlendingum hérna en málið er nú ekki svo slæmt(tel ég). 

 Oftar en ekki er samt sem áður tekið fram ef aðilarnir eru pólskir eða af öðru bergi brotnu en Íslandi.

Valli 28.3.2008 kl. 08:35

4 Smámynd: Reynir W Lord

Já mikið rétt, það kom síðan fram í fréttum að þetta voru íslendingar sem þennan glæp frömdu, þannig að ég er í raun feginn. það hefði verið frekar leitt ef þetta hefðu verið Pólverjar eina ferðina enn, jú það er oftast minnst að þetta séu Pólverjar ef svo er, og finnst mér það líka ágætt. En auðvitað mótast vitund fólk á því þegar það les endalaust um afbrot og eða barsmíðar. " Ég var heldur fljótur á mér í þetta sinn"

Reynir W Lord, 28.3.2008 kl. 10:41

5 identicon

Ég sé bara ekki hvaða máli skipti hvaðan glæpamenn eru, sér í lagi ekki ef þeir eru íslenskir ríkisborgarar því þá eru þeir Íslendingar eins og við hinir.  Nema að þetta sé það sem koma skal og næst verði farið að grafast fyrir um kynhneigð manna, skóstærð og þar fram eftir götunum... þá getum við farið að búa til prófíl að glæpamanni og gætum þar af leiðandi t.d. farið að meina tvíkynhneigðum Pólverjum sem nota skó númer 44-46 og áttu einu sinni Hyundai-bifreið aðgang að landinu!

Dabbi 28.3.2008 kl. 11:55

6 identicon

Nei, það skiptir nefnilega ekki máli Dabbi. En íslenskir fjölmiðlar eru búnir að ramma þetta svona inn fyrir okkur, og í raun búa til vandamál. Hér eru allskyns glæpir framdir daglega af allra þjóða kvikindum, en af einhverjum ástæðum þá er stór hluti landsmanna með það á hreinu að annaðhvort eru þetta Pólverjar eða Litháensk gengi sem eru að ganga frá landinu.

Þurfum að horfa nær, víkka sjóndeildarhringinn, og vera svolítið krítísk á fjölmiðla, því hugsunarháttur þeirra lita allar fréttir sem eru matreiddar ofan í okkur.

Linda 28.3.2008 kl. 13:19

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband