Færsluflokkur: Bloggar

Semjum við Breta um að þeir....

viking Megi bara skammast sín og þegar þeir eru búnir að taka landsbankann af listanum hjá sér og biðja Íslensku þjóðina afsökunar þá mega þeir koma hingað til að ræða við okkur, ef ekki þá geta þeir bara tekið saman og farið af landi brott. Ég sé enga ástæðu til að semja við þá ,þeir hafa valdið okkur gífurlegu tjóni á heimsvísu með hroka sínum og yfirtöku á landsbankanum að það á ekki að ræða við þá fyrr en mikið seinna þegar við eða stjórnin er kominn með gott yfirsýn yfir stöðu mála.
mbl.is Bresk nefnd aftur til Íslands
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Núna þurfa Olíufurstarnir að lækka líka.

N1 og Skeljungur þurfa að lækka núna strax, þeir eru búnir að mjólka okkur alveg nóg, þetta er ekkert annað en græðgi í þeim og þeir ættu að sýna manndóm og lækka og það strax.

 


 


mbl.is Olíuverð lækkar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Erum við nokkuð hissa á þessu !

Nei ég held að það sé það enginn, þetta er rétt að byrja og á eftir að versna til muna því miður. En með Bauhaus þá opna þessi verslun ekki á þessu ári né næsta, tel að þetta verði ekki opnað fyrr en árið 2010 eða 2011.
mbl.is Flestum starfsmönnum Bauhaus sagt upp
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Davið gengur alveg frá okkur. !

Er þetta enn eitt útspil Davíð til að tryggja að við lendum aftur í steinöld, næsti banki takk það er búið að þjóðnýta alla stóru bankanna núna á að fara á eftir þeim litlu þannig að það verði ekkert eftir til að treysta á, sparifé almenning farið, hvað er til ráða næst, hvað næst!!!!!!!!!
mbl.is Krefjast 60 milljarða tryggingar frá Sparisjóðabankanum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvða er í gangi, það er allt þjóðfélagið stopp á meðan

Hvað er með þessa ríkistjórn , veit hún ekki að öll þjóðin er stopp eins og er, það er ekki hægt að flytja inn vörur nema af skornum skammti og fyrirtæki geta ekki beiðið í marga daga eftir þessu , er eitthvað annað í stöðunni en að taka þetta lán, getum við leitað annað.
mbl.is Ríkisstjórnarfundi lokið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Frysta eigur allra sem eiga sök á þessu ástandi STRAX

LockdownHvernig er það , hefur engum dottið í hug að frysta eigur þeirra auðmanna sem eiga sök á þessu ástandi, meðan á rannsókn stendur , og það þarf að fá erlent lið hingað til að fara í saumana á þessu máli og fá úr því skorið hverjir eiga sök, það má alls ekki vera íslenskt lið sem fer yfir þetta , það er mesta hætta á að núna sé verið að vinna eyðingarvinnu á skjölum og gögnum sem skýra þetta,  jú jú við eigum sök á þessu líka öll á sinn hátt með eyðslu og lántöku en að skuldsetja heila þjóð langt umfram þjóðarframleiðslu hlýtur að vera glæpur og við viljum fá að vita hverjir það eru og fá þetta á hreint , hausar eiga að fjúka hvort sem það er ríkið eða einkageirinn, en það er vitað hverjir þetta eru og það á að frysta alla eigur þessa manna til að fá nokkra aura upp í alla þessa tugi milljarða skuldir sem okkur hefur verið steypt í.

Ef ekkert verður gert á næstu vikum eða mánuðum munum við tapa fullt að gögnum og þar með möguleika á að rannsaka þetta mál og fá úr því skorið hverjir eiga sök á þessu.

En meðan á þessari rannsók stendur á seðlabankastjórninn að víkja.


 


mbl.is Fjármálafyrirtækin í vanda
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ekki bara Polverjar sem fara, Íslendingar líka

Ég tel að það verði ekki bara Pólverjar sem láta sig hverfa af landi, Íslendingar eru strax farnir að huga að flutning frá landi, meðan talað er um hávaxta stefnu og fljótandi gengi , eða óðaverðbólgu þá er engum líft að vera hér áfram, eignir verða étnar upp í verðbólgu og atvinnuleysi í hámarki hvað á að halda fólki hér, Ríkistjórn mun verða af milljónum í skatta, hvað er til ráða en að flýja land, enda hafa nánast allir þessi andskotar sem settu okkur í þessa stöðu farið af landi brott. Og þeir lifa góðu lífi með allar okkar penninga.
mbl.is Fólksflótti frá Íslandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þetta er það sem þarf.

Ef allir sem einn lækka verð á sínum vörum draga úr innflutning þá erum við í góðum málum ég tel reyndar að með komandi mánuðum munu margir kaupmenn sjá sig knúna til að lækka verð til að halda áfram, og með lækkandi verð og betri tíð komumst við í gengum þetta. En reynum að sína framtak með þvi að lækka eldsneyti við erum ennþá að greiða allt of hátt verð á Bensín og Dísil, nágranna þjóðir okkar eru með mun lægri verð. en N1 og Skeljungur, AO og Olís lækka ekki.
mbl.is Bakarameistarinn berst gegn verðbólgunni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Væri ekki ráð að koma með jákvæðar fréttir

Hvernig væri að koma með jákvæðar fréttir svona til að breyta til, er ekki komið nóg um neikvæðar fréttir , ég held að það viti nánast allir að þetta verður erfitt á næstu árum en þarf að koma með svona yfirlýsingar , væri ekki ráð að koma með jákvæðar og uppbyggilegar uppl um hvað er verið að gera og hvað þarf að gera. Alla vega finnst mér alveg nóg um þessar neikvæðar fréttir endalaust.

 

 


mbl.is Ingibjörg Sólrún: Erfiður vetur framundan
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Glæsilegt, fleiri fari að þessu fordæmi, flytjum starfsemi heim!

Ekki slæmt að fá þetta hingað heim, og fleiri fyrirtæki sem geta ættu að gera slíkt hið sama.
mbl.is Þjónustuver í Bandaríkjunum flutt til Íslands
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband