Færsluflokkur: Bloggar

Sniðganga N1 og Skeljung.

Hafið þið tekið eftir því að N1 og Skeljungur lækka ekki þó svo að gengið hafi styrkt fyrir helgi, tók eftir að AO er með Dísil á 164 meðan N1 auglýsir 167 kr á lítrann, því ættu við að versla við þá og hvet ég alla til að sniðganga þá sem allra mest til að knýja fram lækkun, þeir voru alla vega nógu fljótir að hækka þegar krónan okkar féll. Og þá voru þeir með afsökun eins og að það sé almenn krafa að fylgja eftir hækkun sem eiga sér stað á heimsmarkaðsverði. Og núna síðast á að breyta EGO í N1 til að græða enn meir.

Sniðgangið N1 og Skeljung.....


mbl.is Olíuverð lækkar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þetta eru þó hugmyndir, hafa aðrir komið með betri NEI

Hvernig er með útrásavíkinganga ætluðu sumir ekki að koma að uppbyggingu Íslands eftir að hafa skilið við það í bruna rústum , nefni einn eins og Björgólf, hefur eitthvað heyrst í þeim manni, nei alls ekki enda eru þessi menn farnir af landi með allan sinn auð og ætla ekkert að hjálpa til hér, enda eiga þeir skít nóg að peningum.

Ég tek hattinn ofan fyrir Dorrit hún sýnir það í verkum og umsögn að hún elskar Ísland litla stóra landið, en hafa aðrir komið með hugmyndir sem hægt er að nota.

Kannski erum við líka alltof svartsýn á allt þetta og það eitt getur líka skemmt mikið fyrir ef menn hætta að versla, það sem er verst við allt þetta er að við erum jú föst í mestu efnahagskreppur frá upphafi lýðveldisins, og þetta var gert með útrás bankanna og óhof í eyðslu.


mbl.is Dorrit: Ísland verði svalari útgáfa af Dubai
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gaman verður að fylgjast með næstu daga...

Hver ætli verði fyrstu mál þeirra á þingi og hvaða reglur eða tilskipanir ætli þeir gefi út, og síðan er spurning hvort að bankar fari eftir þeim, ekki gerðu þeir það síðast, en svona í lok þá verður fróðlegt að fylgjast með gengi krónunnar í dag og næstu dag, síðan er spurning víkur Davíð eða lætur hann reka sig.
mbl.is Stjórnarskiptin vekja athygli
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nú geta þeir farið að græða meir.....Sniðganga N1

Ekki ætla þeir að lækka í takt við gengið eins þeir gerður þegar krónan var að hrapa, þá hækkuðu þeir jafnóðum og gengið féll, núna þegar gengið hefur styrkt þá heyrist ekki í þeim, þar sem það er nú komin samhugur í fólki og fólk er farið að láta heyra í sér ætti það að snúa sér gegn þessum andskotum sem hirða af okkur alla lækkun sem við ættum að fá, sýnum samstöðu og sniðgöngum N1.
mbl.is Egó-stöðvar heyra sögunni til
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þeir eiga rétt á þessu....

Og eins og Árni segir í fréttablaðinu því ætti hann að afsala sér þessum rétt sem hann á , þetta sýnir bara hvernig þeir hugsa og það er um sitt eigið skin alveg að síðustu stundu, Árni átti að vera búin að segja af sér fyrir löngu síðan en núna getur hann og aðrir dregið sér 6 mán biðlaun, og þeir munu gera það allir sem einn, nema Björgvin sem sá sér fært að sleppa þessu.
mbl.is Ráðherrar afsali sér biðlaunarétti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Biddu ráðar þeir hvernig við rekum okkar land ?

Er það í raun þannig að IMF er nýja ríkistjórnin eða erum við leppar fyrir þá, til hvers erum við þá að kjósa ef við ráðum ekki hvort við lækkum eða hækkum vexti, og þeir segja ekki lækka vegna hversu óljós ríkismálinn eru, vá þá eigum við ekki von á góðu.
mbl.is Vildu lækka vexti en ekki IMF
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Síðasta verk Davíð að keyra alla í þrot.

Eins og þegar hann yfirgaf ríkistjórnina og settist í stól seðlabankastjórn sem hann skipaði sjálfur fyrir utan að hækka laun sín talsvert áður, núna heldur hann um stýrivexti og vitandi að fyrirtæki og heimili eru á barmi gjaldþrots gefur hann síðustu skipun sína um að halda vexti háa. Vonandi er þetta hans síðasta verk og fari nú á eftirlaun. Cool
mbl.is Óbreyttir stýrivextir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hreiðar Már ... þú mátt alveg skila öllum þessum milljörðum.

Sen þú ert búin að draga þér laun á ,, vegna mikillar ábyrgðar fékkstu há laun í starfi, og þú  mátt alveg skila öllum þessu enda hefur þú ekki staðið þig í starfi. Finnst þér það ekki sjálfur.
mbl.is Engin stór lán til Tchenguiz síðustu dagana fyrir fallið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nú er komið nóg...

Hættið þessu væli og farið heim til ykkar, þið eruð ykkur og þjóð ykkar til skammar, hver er tilgangur þessara mótmæla, hvað er verið að mótmæla NATO eða eruð þið að mótmæla til að gera eitthvað, maður skilur ekki svona lagað, það væri nær að mómæla eldsneytisverð eða það að byrgja lækka ekki matvörur með lækkandi gengi, en þessi mótmæli eru alveg tilgangslaus.  Crying
mbl.is NATO fundur: Gífurleg gæsla
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ættum við ekki að sjá lækkun á eldsneyti...........

Var það ekki einn að aðalástæðum fyrir hækkun að gengið var að lækka,,, núna þegar það styrkist ættum við ekki sjá hressilega lækkun.... eða þarf að kalla fram mótmæli við N1 og Skeljung til að knýja fram lækkun, eða er okkur sama um að þeir séu að taka okkur endalaust í aftureddan með hækkun og aftur hækkun.... hvað finnst ykkur ?
mbl.is Krónan styrktist níunda daginn í röð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband