Þetta boðar ekki gott, og þarf að stopa

Því miður fyrir okkur eru þetta ekki góðar fréttir sér í lagi með okkar réttarkerfi og fullt fangelsi.
mbl.is Fá fulla aðild að Vítisenglum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Standandi tónleikar með EAGLES.... á 14,900 kr

ER ekki í lagi heima hjá Þeim sem eru að skipuleggja þessa tónleika, var að sjá að miða verð á þessa tónleika er 14.900 eða 19.900 fyrir standandi tónleika enginn sæti í boði nema þá fyrir einhverja útvalda sem þurfa ekki hafa fyrir því að kaupa miða, ég tel að með þessari ákvörðun hafi þeir misst lungann úr þeim hópi sem væri til í að borga 20.000 þús fyrir sæti, ég veit alla vega að ég mun ekki mæta og þessa tónleika heldur mun ég setja Eagles disk í og hækka bara í græjunum heima með einn kaldan .. þetta er dæmigert fyrir hér heima að bjóða uppa Eagles í svona búning er eins og að selja inná tónleika með Björgvin sem standandi tónleika það mundi enginn mæta.
mbl.is Eagles til Íslands
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Við þurfum að koma þessari stjórn frá STRAX

Og helst Steingrím og Jóhönnu, ég segi þetta ekki bara vegna þess að þeir eru í forsvari fyrir sinn flokk og gegna áhrifamestu stöður þessara ríkistjórnar, heldur vegna þess að þau bæði hafa skitið svo langt uppá bak með innantómum loforðum að betri kjör og betri tímar, Steingrímur er sá versti af þeim öllum, og tel ég réttast að hann ætti að segja af sér flytja útá á land og láta ekki sjá sig í pólitík aftur. Jóhanna hefur farið mjög illa með sinn pólitíska feril með því að vera í samfloti með Steingrím og best væri fyrir hana að hætta líka. En með verðið á eldsneyti þá mun steingrímur ekki lækka fyrr mun hann hækka en að koma til móts  við sína þjóð.
mbl.is Ríkið dragi úr álagningu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Allt að hækka nema laun... gengur þetta endalaust

Hvernig sjá menn þetta fyrir sér, það er allt að hækka um 5% til 10% , síðast sér maður að karfan hefur hækkað um 5% í Bónus og heilar 9% í Hagkaup, halda menn að það sé endalaust hægt að hækka og hækka án þess að það verði afleiðingar af því, get ekki alveg séð það , það hlýtur að koma að því að verslun dragist saman og fólk hættir að leyfa sér eins mikið..
mbl.is Fiskverð hækkar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

skömm og ekkert annað.

Þessi dómur væri mun þyngri ef þetta hefði verið tekið fyrir  í EU eða USA. Þetta er skömm á okkar réttarkerfi
mbl.is Sætta sig ekki við dóminn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sniðganga eitt félag... það er eina leiðinn

Ef við stöndum saman og ákveðum að sniðganga eitt félag getum við haft áhrif á verð og samkeppni, en ef við gerum ekkert þá skiptir það engu máli, þeir samræma sínar aðgerðir með hækkun og aftur hækkun allir á sama dag og nánast á sama tíma. Finnst ykkur það ekki pínu skrítið.
mbl.is Eldsneytisverð hækkar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Lækkar úti en hækkar hér? skiljið þið þetta

Hvernig stendur á þessu að það hækkar og hækkar hér en það er að lækka úti,,, erum við alveg geld hvað það varðar að sporna við þessu, þetta gengur ekki lengur að láta hækka og hækka endalaust á okkur.

 

 


mbl.is Olíuverð lækkar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ætla að vona að við sjáum lækkun jafn hratt og þeir eru búnir að hækka?

Finnst ykkur ekki komin tími til að sýna þeim hvað Davíð keypti ölið, við sem notendur og kaupendur af þessari þjónustu getum líka alveg stýrt þessu aðeins með því að sameinast um að versla við eitt félag.

 

Við viljum sjá mjög skarpa lækkun hjá ykkur öllum og það í dag.


mbl.is Olíuverð hækkar hratt og lækkun á ný talin ólíkleg
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þetta er stefna þessarar ríkistjórnar.

Með þessu áframhaldi þá munum við vera í mörg ár til viðbótar að ná okkur úr þessari kreppu, og megum við þakka þessari ríkistjórn og banka fyrir það. Það er dapurlegt að lesa fréttir dag eftir dag um endalausar hækkanir á matvörum , eldsneyti eða aðrar nauðsynjarvörur, en það er allt í járnum með launahækkanir hjá þegnum þessarar þjóðar.

Ég vill sjá nýja ríkistjórn koma að uppbyggingu Íslands, þar sem það er búið að sýna sig að núverandi ríkistjórn er ekki að ná þessu, Steingrímur er búin að ljúga nóg að mér til að ég geti treysti honum áfram,  Jóhanna er ekki að hugsa um hag Íslands, heldur banka og fjármálafyrirtækin.  Það er mikill óvissa í gangi núna og kallar það fram mjög hægan hagvöxt. 

Samhliða þjóðaratkvæðisgreiðslu vill ég sjá þingkosningu og strax á haustmánuðum, ég vil sjá nýja stjórnmálaflokk rísa flokk sem hugsar fyrst og fremst um almenning og verkalýðinn.

En þetta er draumur sem mun aldrei verða þar sem við erum gíslar í okkar eiginn landi.:(Angry 


mbl.is Fjárfestar fælast frá
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Eru þið ekki að fatta þetta ennþá??

Við munnum aldrei sjá lækkun aftur, það styttist í að við sjáum 250kr + á eldsneyti þannig að við skulum ekki vera mjög óhress ennþá, en við getum líka haft smá áhrif á þetta með því að sýna samstöðu en það er líka vonlaus barátta þar sem við getum ekki tekið saman höndum, við tölum um þetta á kaffi stofum og vælum en gerum ekkert.
mbl.is Verð á bensíni hækkar enn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband