Ekki rétt

Það eru margir Iðnaðarmenn farnir að undirbúa flutning út og hafa ekki flutt lögheimilið sitt enn sem komið er, margir eru að koma upp íbúð og festa sig í vinnu áður en þeir kalla til fjölskyldunnar, en ég mundi gera ráð fyrir að það verði sprenging í flótta frá Íslandi á næsta ári ef það er eitthvað að marka allar þessar skattahækkanir sem á að leggja á okkur 2.5 Kr á bensín. 10% viðbótarskatt á áfengi og tóbak virðisaukaskatt og margt fleira fyrir utan þess að laun eru að rýrna , jú þá taka þeir til þess ráða að leyfa fólki að taka meira út af séreignasparnaðinum sínum því þá fær ríkið enn meir . Þvílík andskotans vitleysa ég er alveg komin á þá niðurstöðu að Jóhanna og Steingrímur hafa sett hlífðarskildi utan um ríkið og ráðherra , en mjólka þjóðinni eins og hægt er.... en á meðan eru útrásarvíkingarnir allir farnir af landi brott með sínar milljarða og lífa góðu lífi... vá hvað er að þessu
mbl.is Fleiri flytjast til útlanda en nokkru sinni fyrr
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband