Og ekki sjáum við lækkun hér.

Finnst ykkur ekki landi góður að komin sé tími á stóra lækkun á olíu hérlendis, það fer svo í taugarnar á mér að sjá sífelda lækkun á heimsmarkaði en ekkert skeður hér, þeir bera við að þeir vilji sjá hvort þetta haldist eða hvað. Lækkið strax ....


mbl.is Olían lækkar enn vegna minnkandi eftirspurnar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Gerist nokkuð fyrr en við látum þá finna fyrir minni eftirspurn?

Ég hugsa mig amk 2x um að nota bílinn ef ég þarf að fara eh og viti menn, manni líður rosalega vel að hugsa svona að spara og fara vel með umhverfið, ja svei mér já.

kv Han Solo og Jónína kisa

Han Solo 1.8.2008 kl. 00:42

2 identicon

Já, olíufélögin eru að "stela" af okkur lækkun á olíu sem á sér stað á heimsmarkaði.

Þegar hráolíuverðið fór í 145 USD tunnuna fyrir skömmu, voru olíufélögin hér ekki lengi á sér að fylgja þessari hækkun eftir og hækkuðu lítraverð á benzíni í 174 kr.

Nú hefur hráolíuverð á heimsmarkaði lækkað niður í 124 USD tunnuna eða sem svarar 15 % síðan það var hæst í 145 USD tunnuna.

Mín vasahagfræði segir mér því að verð á benzínlítranum ætti að lækka hér á landi í um 147 kr. eða sem svarar um 15% lækkuninni á heimsmarkaðverðinu á hráolíunni.  En hvað gerist???  Ekki neitt.  Verðið er enn 171 kr. líterinn eins og hann hefur verið undanfarnar þrjár vikur.

Við neytendur hér á landi krefjumst að olíufélögin lækki verðið strax í 147 kr. - ekki satt?  

Haraldur Fr. Jóhannesson 1.8.2008 kl. 09:05

3 Smámynd: Reynir W Lord

Haraldur, gæti ekki verið meira sammála þér, þetta er ekkert nema rán og við vitum að, þeir nýta sér þessa helgi til að halda í þá hækkun sem er og lækka kannski um nokkrar kr eftir helgi og koma þá með afsökun um að þar sem gengið og olíuverð hafi haldist stöðugt vilja þeir gleðja landann með lækkun , ha ha ha  , En og aftur segi ég sniðganga sem ALLRA mest N1 og Skeljung, hugsið ykkur um tvisvar áður en þið fyllið á tankinn farið á Olís eða Orkuna, eða AO. Ekki nota N1 eða skeljung látum þá finna fyrir aðgerðum okkar.

Reynir W Lord, 1.8.2008 kl. 09:14

4 identicon

Sammála þér, Reynir, hættum að versla við N1, Olís og Skelfjung. 

Haraldur Fr. Jóhannesson 1.8.2008 kl. 12:39

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband