Hvað vitum við ? ? ? ?

Við vitum ekkert hvað skeði hjá Erlu fyrir einhverjum árum, kannski eiga þeir eitthvað sökótt við hana og eru að gera upp gamlar skuldir, við skulum ekki vera of fljótt að dæma og ég efast um að það komi  í ljós hvort eða hvernig þessu líkur.

 


mbl.is Hörkulegri meðferð formlega mótmælt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Steini Thorst

Well, við vitum það sem hún skrifaði á bloggið ekki satt,....að þetta snerist um þessar 3 vikur og ekkert annað. Er eitthvað fleira sem þú þarft að vita?

Steini Thorst, 13.12.2007 kl. 15:47

2 Smámynd: Vignir Arnarson

Eigum við ekki að gefa okkur að konan sé heiðarleg Reynir en ekki einhver gamal usa krimmi  

Vignir Arnarson, 13.12.2007 kl. 15:47

3 identicon

Aðalatriði var að hún var lengur í USA árið 1995 en hún hafði heimild til.  Eigum við ekki að virða lög annarra landa ef virða á okkar eigin lög.  Það er látið eins og hún sé einhver engill.  Ef maður t.d. ekur bíl án þess að hafa til þess heimild til þess, ég tala nú ekki ef maður ekur fullur, er maður beittur einhverjum vettlingatökum af lögreglunni hér á landi?? 

Þessi viðbrögð þarna úti eru vegna hryðjuverkalaga (þá svo að Erla sé náttúrulega ekki hryðjuverkamaður). Það má líka baráttu yfirvalda hér á landi gegn ölvunar- og fíkniefnaakstri, við baráttu Bandaríkskra stjórnvalda við hryðjuverk - allir grunsamlegir eru stoppaðir og teknir úr umferð.  Segja má að hryðjuverk og ölvunarakstur sé meinvörp sem berjast þurfi við.  Bæði fyrirbrigðin geta leitt til stórtjóna og dauða..........

Njáll Hreggviðsson 13.12.2007 kl. 16:25

4 identicon

Held að málið sé ekki hvað hún gerði, heldur hvað hún gerði til að þurfa að þola þessa meðferð.  Og ég efast reyndar um að fáir eigi að þurfa að upplifa slíkt, sama hvað þeir hafi gert.  Og svo ætti fólk stundum að líta sér nær.

með bestu kveðjum  

Viðar 13.12.2007 kl. 18:41

5 identicon

Þessi paranoja er bara orðin svo óþolandi að maður  nennir varla að ferðast lengur. Lenti í vandræðum um daginn af því að ég var óvart með óopnaðann trópí í handfarangrinum.

Kanarnir eru náttúrulega verstir hvað þetta varðar

guðjón 13.12.2007 kl. 23:41

6 identicon

Njáll þú ásamt svo mörgum öðrum ert alveg gjörsamlega að misskilja um hvað allur æsingurinn snýst. Að sjálfsögðu hefur kaninn rétt á að vísa henni úr landi ef hún hafði brotið af sér, en málið snýst heldur ekkert um það, heldur um meðferðina sem hún þurfti að þola meðan hún var í haldi. Það er eitt að vera "ekki beittur vettlingatökum", en það að meina henni t.d. um vatn er einfaldlega mannréttindabrot, og er eitthvað sem á ekki að viðgangast sama hvað hún hefur gert. Um leið og valdhafar eru farnir að traðka á mannréttindum þá eru þau komin út á hálan ís. Ég efast að auki um það að það séu mörg mannréttindabrot framin í baráttu lögreglunnar hér á landi gegn ölvunarakstri.

Egill Viðarsson 14.12.2007 kl. 01:08

7 Smámynd: Reynir W Lord

Ég veit ekkert meir um þetta mál nema það sem komið hefur fram á sjónvarpi, ég er alveg viss um að greyji hún Erla hefur mátt þola skelfilegar aðstæður og sé ekki hress með móttökurnar. En ég vona að þetta lagist.

Reynir W Lord, 14.12.2007 kl. 07:49

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband