Bloggfærslur mánaðarins, desember 2011

Auðvitað fá þau jólabónus fyrir vel unnin störf!

Hvað er að ykkur öllum auðvitað eiga þau rétt á að fá leiðréttingu launa enda staðið sig vel í öllu sem þua hafa tekið sér fyrir hendur, er það ekki, hækkun skatta umfram allt annað er eitt dæmi um iðjusemi þeirra, hækkun elsneytisverð, hækkun áfengisgjalds, hækkun matarverð, hækkun verðtryggða lána, þetta er bara bort af því besta sem þessi ríkistjórn hefur gert.

 

Og auðvitað eiga þau rétt á að fá hækkun launa þar sem hækkun skatta hefur leitt til þess að ríkið á meiri peninga, í stað þess að koma með jólabónus til þeirra sem minna mega sín þá hækka þessu herra menn sín laun fyrst , það verður ansi gaman að sjá hvað skeður eftir áramót þar sem það er búið að móta nætu hækkanir til landsmanna.


mbl.is Eiga inni um hálfa milljón hver
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hættið að greiða 4% !!

Ég hef í mörg ár greitt 4% í séreignasparnað og frá og með áramót er því lokið, ég mun ekki taka þátt í þessu bulli sem þessi ríkistjórn er að leika sér að. Hvet ég alla sem einn sem greiða 4% að lækka það í 2 % og þar með sniðgagna tvísköttun.
mbl.is Færri greiða í séreignarsparnað
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þetta er það sem Steingrímur og Jóhanna vilja

Fá fleiri til að flytja frá landi þá þarf ekki að hafa áhyggjur af atvinnuleysi, hækka skatta meir og þá fara fleiri. Svona er þessi ríkistjórn ....
mbl.is Ekki fleiri brottfluttir í 100 ár
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ísland skortir traust

Skondið þetta er fyrirsögn á mbl rétt fyrir ofan að starfsfólk Arion gat keypt, sukkið heldur áfram og mun gera það, við gerum ekkert nema taka því sem okkur er boðið sem eru hækkandi skattar, hækkandi lán, hækkandi matarverð og segjum bara takk. Arion banki , Íslandsbanki, og ekki síst Landsbanki sjúga mergið úr þjóð og græða milljarða meðan fólkið sveltur. Vá hvað þetta er skrítið en sannleikur samt. 


mbl.is Starfsfólk Arion gat keypt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fleiri flýja land...

Enda er ekkert hér að hafa nema skattpínu og ríkistjórn sem er vanhæf með öllu að stjórna þessu landi, hækka áfengi á að skila ríkisjóði peningum, Kann mannfjandinn hann steingrímur ekki að lesa skýrslur, það er búið að margsegja honum það að þetta skilar engu í kassann, hækkun gjalds á eldsneyti mun minna keyrslum þannig að það skila engu. Vá ég held að það væri þessari þjóð til gagns að senda Steingrím aftur í barnaskóla. Hann gæti lært eittvað
mbl.is Íbúðalán hækka um 3-4 milljarða
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Besti Flokkurinn... já sæll eigum við að ræða það.

Eigum við virkilega að hafa Besta flokkinn áfram og þá líka í ríkistjórn þessa lands, ég ætla rétt að vona að fólk sé aðeins farið að átta sig á þessum skrípaleik sem besti flokkurinn er, og ég ætla mér að vona að það takist ekki að koma núverandi borgarstjóra á þing, né nokkrum öðrum sem eru núna í stjórnatauma í Reykjavík, ég held ég mundi þá flýja land með skömm.


mbl.is Nýtt nafnlaust stjórnmálaafl
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Rúm 30% hækkun í þjónustugjöldum hjá MP banka

nýleg hækkun hjá MP banka hlýtur að skila sér með mun betri þjónustu er það ekki, það var ekki langt síðan að það kostaði 150kr að leggja inn pening í annan banka en sinn, en núna kostar það 200kr að gera slíkt hið sama, en þetta er eitthvað sem fólk tekur ekki eftir. margt smátt gerir eitt stórt, þannig að ef við tökum 1000 mans á mánuði gera þetta 200.000 þús kr.... það slagar upp í hafsdags starf hjá þessum banka.
mbl.is Vöruverð hækkar víðast
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband