Bloggfærslur mánaðarins, júlí 2009

Algjör snilld

 peningar

Þetta eru þeir sem komu okkur í þessa stöðu sem við erum í og núna vilja þeir græða aðeins meir á okkur með því að bjóða okkur aðlögun á nýju láni sem að sjálfsögðu verða með 6.% eða hærri , og þeir sem eru núna með 4.15% þurfa þá að taka á sig hækkun sem því nemur, það er alltaf eitthvað sem byggi á bak við þetta hjá þeim, þeir eru ekki að þessu að góðmennsku einu ,,, þeir verða að græða meira á þessu ári og til þess koma þeir með svona útspil


mbl.is Nýja Kaupþing býður skuldaaðlögun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þetta er rétt að byrja...

ice-save-logo11

Eftir að búið er að samþykkja IceSave samninga þá þarf að skattleggja þjóð enn þá meir og þá flýja en fleiri, það er enginn uppbygging hér og bara niðurbrot, t.d. það er 15 % samdráttur í sölu á áfengi en þeir eru ný búnir að hækka álögum og skatta þar, þannig að gróðinn er enginn fyrir ríkið, næst verður það matarskattur sem leggst á alla sem einn, en meiri eldsneytisskattar og svona mætti lengi telja en þeir verða að kreista þjóðina meira til að standa undir þessum samningum, ég veit um nokkra sem eru að skoða að flytja út og ég er viss um að aðrir þekkja nokkra þannig að þetta er rétt að byrja, hvað á að halda manni hér sér í lagi fagmenntað og eða sérfræðingar en menntað fólk fær vinnu erlendis og því ættu við að borga brúsa annarra manna sem komu þjóð sinni á hausinn og eru sjálfir farnir af landi vegna þessa. Ég er hræddur um að Íslenska þjóðin verði tugi ára að ná sé eftir þessa útreið. 


mbl.is Hundruð flytjast til Noregs
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nú á að kreista og kreista

Nú á að setja okkur í klemmu, og hóta öllu íllu ef við göngum ekki að skuldum björgölffeðga, er ekki komið nóg, látum þessa andskota greiða þetta .
mbl.is Hættir að lána Íslendingum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Við verðum að efla lögregluna

Ég tel það algjört lágmark að hafa góða löggæslu í þessu landi sér í lagi núna þegar kreppir að þar sem afbrotum fer fjölgandi og lögreglan fer fækkandi, þetta er ekki sérlega auðvelt starf það vita margir og ekki fyrir alla að sinna, þannig að við ættum að þakka þeim sem vilja vera í lögreglunni með því að efla stöðu þeirra og starf. sá það nýverið að það er 61% aukning á innbrotum miðað við sama tíma og í fyrra, er það ekki nóg til að segja okkur að við þurfum að efla löggæsluna, hvað er búið að taka mikið dóp á síðasta ári, síðan má líka gera það sama og er gert annars staðar, dópsalar tapi öllu sem þeir eiga og lögreglan fær það til sínar afnota eða sölu til að efla starfið þeirra.
mbl.is „Erfitt og sársaukafullt“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næst koma ofurlaun og bónusar

Með því að ríkið sleppi takinu á þessum bönkum okkar þá eigum við eftir að sjá ofurlaun og stóra bónusa aftur, og þeir sem sátu áður í nefndum og stjórn fá þessi sæti eflaust aftur og þar með hærri laun en sem nemur launum Forsætisráðherra sem eru rúmar 900 þús.
mbl.is Glitnir eignast Íslandsbanka
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Og ekki erum við farinn að sjá lækkun hér

Eða hafið þið séð það á Olíufélögunum, enda væri það mjög skrítið að sjá það .... þeir hækka bara og lækka ekki....
mbl.is Hráolíuverð við 60 dali
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Afskriftir handa öllum

Hvernig væri að við færum fram á að okkar skuldir séu felldar niður að hálfu leiti ég væri mjög ánægður með það, og tel ég ef af þessu verður mun allt vera vitlaust hér á landi. það er verið að bera fólk út úr íbúðum sínum og fólki hótað en þessir herramenn geta lagt til að greiða helming og Bankinn telur það raunhæft tilboð... er ekki í lagi .....
mbl.is Öryggi starfsmanna ógnað
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvernig er þetta, eigum við ekki að sjá lækkun hér þá

Eða ætla þessir andskotar að halda upp i háu verði, þeir ættu að skammast sín þessir aðilar, eins og t.d AO og N1 , AO vegna þess að þeir auglýsa virk samkeppni en eru alls ekki virkir...
mbl.is Hráolían lækkar enn í verði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Google version 1.0

Já sko,, ekki verður að þeim skaffið að koma með sitt eigið stýrikerfi er bara snilld, nú þegar eru til margar útgáfur af stýrikerfum sem fólk hefur aðgang að, sem dæmi Linux, Windows eða MacOS , Windows er með 80% markaðshlutdeild og síðan koma MacOS og Linux í kjölfarið, mig grunnar að þar sem Linux er opið kerfi byggt á GNU o og GPL þá mund Google vera linux bragðefni sem við sjáum , efast stórlega að þeir muni leggja í MS risann, heldur koma með Google Linux sem er gott og gilt og gæti náð einhverri útbreiðslu meðal Linux notenda, núna í dag þegar kreppir að er margir að skoða linux og opin hugbúnað, Ubuntu, OpenSuse, Fedora eru hvað vinsælust og með þessum stýrikerfum koma Office pakkar , Open Office 3.0 og núna síðast bætist við Symphony 1.3 sem er opin hugbúnaður og vinnur með Office 2007 eða þá til að útskýra það betur þá opnar það vistuð skjöl frá Office 2007 og hægt að vista þau aftur sem slíkt. 

En þetta verður spennandi að sjá Google version 1.0 (Linux eða ?)


mbl.is Google áformar stýrikerfi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ættum við þá ekki að sjá lækkun hér...

Hvað segja þau Olíufélög nú, á ekki að sýna lækkun jafnt sem hækkun þegar það á sér stað, það vantar ekki að þeir hækki þegar olía hækkar á erlendum mörkuðum, en þeir draga það eins og þeir geta að lækka þegar lækkun á sér stað, Sniðganga eitt félag til að knýja fram lækkun.
mbl.is Hráolíuverð nálgast 64 dali
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband