Bloggfærslur mánaðarins, janúar 2009

Árni á að segja af sér STRAX.................

Ég vill sjá Árna axla ábyrgð líka og segja af sér strax..
mbl.is Björgvin segir af sér
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvað græðum við á nýja stjórn.

Hvað græðum við á þvi ég spyr, væri ekki betra að sýna öllum að okkur sé alvara og láta menn taka pokann sinn og axla ábyrgð, ég held að Sigmundur sé að stimpla sig inn með yfirlýsingum og VG vill komast að þar sem þeir eru núna með mesta fylgi frá stofnun þess, en er það betra ég er ekki viss, við verðum að sýna stillingu og velja rétt, ekki æða fram með óskir um breytingar, en hvað viljum við flokka pólitík, grasið er ekki alltaf græna hinum megin, mig grunar líka að menn séu að tala stórt um að þeir munu fara aðra leið en þegar þeir eru komnir í stjórn þá breytist tóninn í þeim þegar þeir sjá hvað ástandið er alvarlegt, hvað gera menn þá á að mómæla aftur og reka þessa þá stjórn . Við verðum að sýna stillingu og velja rétt.

Ég er ekki viss um að kosning sé lausn á okkar vandamáli. 


mbl.is Hátt í 8.000 undirskriftir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nú er komið nóg....

Nú er komið nóg, núna eru þetta skrílslæti og ekkert annað, 80% af þessum mótmælendum sem eru að þessu eru unglingar og krakkar, nú segi ég að nóg sé komið við erum búin að koma skilaboðum áfram og ríkistjórnin er farinn að hlusta á okkur, en að vera með svona læti kallar bara á vandræði og slys.

 

Þetta eru ekki fulltrúar mínir sem eru þarna, ég vil réttlæti og ég vil að menn axli ábyrgð og taki poka sinn en ég vil ekki svona mótmæli.Angry

 


mbl.is Tveir lögreglumenn slasaðir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Enga kosningu.

Það gengur ekki að boða til kosningar strax, það þarf að fá menn til að axla ábyrgð á gjörðum sínum, við megum ekki missa okkur í svona bull að fara að skipta út mönnum núna þetta er ekki rétt tíminn til þess, eigum við ekki frekar að fá menn til að segja af sér vitandi að þeir hafi gert rangt eða ekkert við þessu ástandi , núna eru framsóknamenn komin með nýja forystu og hvað vilja þeir jú þeir vilja að sjálfsögðu komast að ,,, sýna sig og sanna, ég segi nei ekki strax, en ég vil sjá þingmenn sem og ráðherra segja af sér vegna ástandsins.
mbl.is Rætt um efnahagsmál á morgun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er það eithvað betra.....

voting_yellowÉg er ekki viss um að það sé betra að kjósa nýja stjórn núna þegar við erum að reyna að vinna okkur í gegnum mjög erfiða tíma, það sem ég mundi vilja sjá er að menn axli ábyrg á gjörðum sínum t.d að segja af sér , Árni á ekki heima á þing eftir að skipa son Davíð í starf héraðsdómara, Björgvin á að segja af sér þar sem hann er Bankamálaráðherra, Geir á að víkja þar sem hann vissi um þetta og gerður ekkert til að koma í veg fyrir þetta gífurlega hrun, Seðlabankastjórn öll á að víkja og það strax og faglegur Bankastjóri á að taka við, ég segi einn þar sem við höfum ekkert með 3 bankastjóra að gera, fjármálaeftirlitið á að fjúka líka og nýir menn í stað þeirra, þá fyrst förum við að sjá trúverðleika á Íslandi eflast ekki fyrr, það eitt að óska eftir kosningu er bara fásinna finnst mér. Við verðum að sýna umheiminum að þeir sem eiga ábyrg á þessu eiga að víkja, og það ekki seinna en strax.

Auðvitað vilja VG og Samfylkingin fá kosningu þeir eru með meiri fylgi núna en er það rétt NEI það finnst mér ekki. 

 


mbl.is Óhjákvæmilegt að kjósa í vor
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þetta er rétt að byrja hjá okkur

Núna næstu mánaðarmót verða um 15.000 mans atvinnulaust og ekkert lát er á því, trú manna erlendis á íslandi er enginn og birgjar sem fyrirtæki hafa haft út á við erum brostinn, meðan þessi ríkistjón er við völd og enginn axlar ábyrgð á þessu ástandi breytist þetta ekkert, fólk er búið að fá nóg af afskiptaleysi ríkistjórn, meðan aðrar þjóðir eru að efla atvinnu og auka fjárstreymið lækka vexti hækkum við þau og leggjum meiri skatta og álögur á almenning sem er jafnvel að missa vinnuna. Er þetta rétt.
mbl.is Piparúði og handtökur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Olíuverð lækkar en þeir voru að hækka um 2 kr hér

Erlendis lækkar og lækkar verð á olíu en hér hækka menn, ég tók eftir því í morgun að allir voru búnir að hækka um tæpar 2 kr, ekki sjá ég neinn staðar fjallað um það í blöðum eða netinu, þetta er orðið þannig að ef einn prumpar þá gera þeir það allir, þeir vita að við verðum að kaupa eldsneyti og meðan þeir gera hækka þeir og hækka. Gaman verður að sjá þegar tunnan ef komin í 25$ hvað borgum við þá.
mbl.is Olíuverð lækkar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þetta er rétt að byrja!

30ae7f4bce0f45e15d436adad5d40a3c_300x225Og það sem er fyndið við þetta er að þessir herramenn halda því fram að þetta sé allt löglegt og ekkert við þetta að athuga. En er þetta siðlaust og ábyrgðalaust já segi ég, þeir eru búnir að ræna þessa þjóð um tugi ef ekki hundruð milljarða og núna eru þessu sömu menn að mjólka ríkið og okkur ennþá.

En það sem mér finnst að besta við þetta er að það voru bankarnir sem settu okkur á hausinn og núna eru það bankarnir sem segja hverjir lifa þetta af og hverjir ekki, þeir sækja á alla sem skulda nokkur þúsund með lögfræðingum og dómum en eru sjálfir yfir dóm hafðir, það verður aldrei neitt við þessu gert.

Kaldhæðnislegt að sjá þetta ske, og við getum jú mótmælt en erum við að skila árangri, nei því miður 2-4 þúsund manns eru að mætta á laugardögum, en það er ekki nema 1% af þjóðinni eða svo, og það dugar ekki til að Ríkistjórninn takið mark á okkur, og þessir öðlingar sem settu okkur á hausinn með bruðl eru heima og hlæja að okkur vitandi að við erum ekki þannig þjóð að við fjölmennum í mótmæli.

Varð að bæta þessu við þar sem þetta er akkúrat það sem ég er að segja hér, Ríkið verndar auðmenn, og skjaldborginn sem átti að setja utan um fjölskyldur er ekki að virka.

sjá frétt á vísi.is

 


mbl.is Milljarðalán án áhættu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Svei mér þá....

Gaman væri að fá sannleikann í þessu máli og öllu öðru sem hefur komið upp, enda er það ekki skrítið að þjóðin skuli vera gjaldþrota eftir annað eins og þetta, það á eftir að koma mun meira í ljós sem er bæði löglegt og siðlaust en við þessu er ekkert að gera nema rannsaka þetta og koma með dóm. Við krefjumst þess að okkur sé sagður sannleikurinn, það er það eina sem ég mundi vilja fá .

veit ekki með aðra. 


mbl.is Ekkert óeðlilegt við viðskiptin við Al-Thani
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Tækifæri fyrir ríkið og Olíufélöginn til að græða á okkur

Enn eitt tækifærið til að græða á okkur, því ekki sjáum við lækkun hér þó svo að heimsmarkaðsverð lækki og lækki.
mbl.is Olían í 10 dali?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband