Stöndum með okkar mönnum..Mótmælum fyrir þá

Því ekki að mæta við þing og mótmæla fyrir hönd okkar lögæslumanna, það er algjör synd að þessi men og konur sem leggja sig í hætta oft á tíðum okkar vegna séu ekki með meiri í laun en rúmar 211.000 þús kr, eftir að hafa farið í gegnum skóla og allt, Stjórnvöld ættu að skammast sín og hvet ég sem flesta landsmenn að mæta við þinghúsið og mótmæla fyrir hönd þeirra enda geta þeir það ekki .

 

Stóðst ekki mátið og varð að láta þetta fylgja með."

Sæl veriði Jóhanna og Steingrímur. Ég vildi koma kæru þakklæti til ykkar þá ákvörðun að heimila Gerðardómi að hækka laun mín úr 268 þúsundum í 282 þúsund. Eftir skatt þá gæti ég líklega boðið frúnni í bíó og við fengið okkur sitthvora samlokuna með skinku öðru megin. Það er nú bara þannig. Ég hef starfað sem lögreglumaður í 18 ár og gert það með innfæddri hugsjón og stolti sem endanlega brotlenti í dag. Ég stóð við Alþingi í búsáhaldabyltingunni og var grýttur þannig að hjálmur minn skemmdist varanlega. Ég fór fyrir hópi 8 manna sem króaðist af við vesturgafl alþingis þar sem við vorum barðir og lamdir eins og í ofbeldisfullum tölvuleik. Ég fékk í höfuð mitt, saur, skyr, planka, múrstein og logandi kvist úr jólatré. Ég var staddur inn í Alþingi þegar þú Steingrímur baunaðir yfir okkur lögreglumenn. Það vildi bara svo skemmtilega til að ég var nýkominn inn lúbarinn og þreyttur þar sem æstir mótmælendur voru nýbýnir að bauna á mig líka. Þannig ég var með tiltölulega breitt bak þegar þú hófst upp raust þína. En þú varst nú ekki eini alþingismaðurinn sem sá ástæðu til að bauna á okkur örþreyttu lögreglumennina. Þú getur nú huggað þig við það. Á ferli mínum hef ég séð látin börn allt frá 8 mánaða og upp í 18 ára. Einu sinni hélt ég í hönd á deyjandi 8 ára gömlum dreng sem keyrt var á í efri byggðum Reykjavíkur. Ég hef ekki tölu á slysum sem ég hef komið að á mínum ferli og þeim sorglegu aðstæðum við það að fara inn á sundurbarin heimili þar sem fyrir liggur sundurbarin eiginkona og oft á tíðum sundurbarin börn líka. Ég hef nokkrum sinnum þurft að leita á slysadeild vegna meiðsla sem ég hef hlotið við störf. Bara á þessu ári ef ég þurft að beita varnartækjum gegn æstum múgi oftar en einu sinni. Nú í sumar reyndi sannarlega á liðleika minn sem ég þakka reglulegri ástundun golfíþróttarinnar. En þá náði ég að fetta þannig upp á mig og náði þannig að verjast trítilóðum manni sem veittist að mér með búrhníf. Það endaði sem betur vel mér í hag í það skiptið. Veit ekki hvort ég verði svona heppinn næst. Vonandi. Jæja ég ætla að láta staðar numið hér í bili. Ég verð því miður að hryggja ykkur með því að ég verð ekki á Austurvelli 1.okt n.k. þegar íslendingar fjölmenna og fagna komu ykkar til starfa á Alþingi. Ég er farinn að finna fyrir kverkaskít og ekki ólíklegt að ég verði frá vinnu þann daginn. Það var greinilega einhver flensupest að ganga í Borgartúninu í dag. Fleiri félagar mínir voru líka að kvarta undan einhverjum óþægindum. Líklega er þetta bara einhver óbeit í hálsi. Jæja ég kveð ykkur að sinni. Kveðja Marinó Már Magnússon Lögreglumaður 9513 Lögreglunni á suðurnesjum. p.s. Jóhanna þinn tími kom. Okkar tími kemur bara síðar. Er það ekki?


mbl.is Lögreglumenn geta engu treyst
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sumarliði Einar Daðason

Tek undir þessi orð þín!

Sumarliði Einar Daðason, 24.9.2011 kl. 13:26

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband